Karellen

Bakki er eldri i deild leikskólans þar sem að börnin eru frá þriggja til sex ára

Deildinni er skipt efir aldri þar eru lykilpersónur sem sjá um hvorn aldurshóp fyrir sig. Á Bakka er leitast við að hvert barn fái að njóta sín í barnahópnum og hafi frelsi til að upplifa ólíkan efnivið í leik og starfi. Við leggjum áherslu á að vinna með málörvun í öllu okkar starfi, við teljum það almennt gott fyrir barnahópinn enda eru þetta börn á máltökualdrinum.

Einu sinni viku fara börnin í skipulagða tónlistarstund, allar stundirnar hafa eins upphaf og og endi, með því skapast öryggistilfinning og vellíðan hjá barninu.

Tónlistastundirnar eru fjölbreyttar, farið er í spunaleiki þar sem ímyndunnaraflið fær að njóta sín. Við vinnum með hljóðfæri og syngjum með og lögð er áhersla á að spila í takt og læra lög og texta.

Sjálfssprottinn leikur /flæði fær tíma í dagskipulaginu þar sem settar eru upp stöðvar með leikefni við hæfi, skynjunarherbergi, þar sem unnið er með ljós og skugga og ýmsar tilraunir gerðar., Spilasvæði, kubbasvæði, myndsköpun á einu svæði og auðvitað hlutverkaleikurinn. Ákveðinn kennari á svæðið í sex vikur og bíður upp á skemmtilegan og hvetjandi efnivið. Skráir og skoðar leikinn hjá börnunum. Við leggjum áherslu á hæglæti í okkar starfi, höfum fá börn í hóp, svo að hver og einn fái að njóta sín á sýnum forsendum.

Deildarstjórar eru Sigrún og Helga Björg

© 2016 - 2026 Karellen