Börnin á Skerjagarði sömdu ljóð á degi íslenskrar tungu. Við lásum ljóð Jónasar Hallgrímssonar og börnin sömdu ljóð í sömu mynd út frá sínum hugarefnum.
Buxur, vesti, brók og skó,
bætta sokka, nýta,
húfu-tetur, hálsklút ...
Slökkviliðið kom í heimsókn á Skerjagarð og voru með fræðslu fyrir elstu börnin. Börnin voru til fyrirmyndar, fróðleiksfús og prúð.
Starfsmenn fóru á frábært lubbanámskeið á starfsdegi. Við erum alltaf að gera frábært starf enn betra.
Eldri börnin á Skerjagarði fögnuðu degi náttúrunnar í fjörunni í Skerjafirðinum. þau söfnuðu öllu rusli sem þau fundu í fjörunni, nutu útiverunnar, sulluðu , gerðu sandkastala og máluðu steina. Allir komu vel blautir og glaðir heim eftir daginn.
...Í dag er A dagurinn. Dagurinn er í tengslum við málörvunar verkefnið Lubbi finnur málbein þar sem unnið er með eitt málhljóðin í einu. Börnin komu með hlut að heiman sem að byrjar á hljóðinu A og sögðu frá honum.
Listsköpun í fjörunni , málað með vatnslitum og notaður sjór. Frábær dagur til útikennslu.
...